Menning

Bergmál fortíðar

Proscenium VII. Þetta verk Sonju Thomsen má sjá á sýningu hennar og Charlottu Maríu Hauksdóttur sem opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur um helgina.
Proscenium VII. Þetta verk Sonju Thomsen má sjá á sýningu hennar og Charlottu Maríu Hauksdóttur sem opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur um helgina. Mynd/Sonja Thomsen
Tvær sýningar verða opnaðar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á morgun.

Annars vegar Bergmál, samsýning Charlottu Maríu Hauksdóttur og Sonju Thomsen. Viðfangsefni sýningarinnar er tíminn og endurbirting hins liðna. Titillinn vísar ekki aðeins til þess hvernig hið liðna endurvarpast inn í nútímann, heldur einnig til þess hvernig verkin á sýningunni kallast á. Þær Charlotta og Sonja stunduðu nám á sama tíma við San Fransisco Art Institute, þaðan sem þær útskrifuðust með MFA-gráðu í ljósmyndun árið 2004.

Hins vegar er það sýning á ljósmyndum danska læknisins Christians Schierbeck, sem starfaði í Reykjavík frá 1901 til 1902 og bjó á Laufásvegi ásamt eiginkonu sinni, Sofie Holstrup-Schultz. Schierbeck tók talsvert af myndum meðfram starfi sínu.

Hann hélt dagbók þar sem hann skrifaði við hverja mynd ýmsar upplýsingar og persónulegar athugasemdir og fangaði þannig vel augnablik í lífi bæjarbúa. Börn á Skólavörðustíg með Skólavörðuna í baksýn, stúlka á leið úr bakaríinu, og hestar við verslun Ziemsens ræðismanns er meðal þess sem sjá má á ljósmyndum hans. -hhs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.