Tíska og hönnun

Glæsileikinn var allsráðandi

Gullfallegir keppendur!
Gullfallegir keppendur!
Það voru ekki bara keppendur Ungfrú Alheims sem geisluðu af fegurð á keppninni sjálfri heldur vöktu, dómarar, kynnar og gestir margir hverjir mikla athygli fyrir glæsileika.



Eins og Lífið greindi frá í gær var það hin tuttugu ára gamla Olivia Culpo sem bar sigur úr býtum en hún er jafnframt Ungfrú Bandaríkin.

Það var engin önnur er sjónvarpsstjarnan Giuliana Rancic sem var kynnir keppninnar ásamt Andy Cohen. Rancic leit óaðfinnanlega út að vanda en hún var með fallega upp sett hárið, flotta förðun og diskóneglur.

Giuliana að störfum.

Fyrrum Playboy kanínan Holly Madison mætti á keppnina. Hún gengur nú með sitt fyrsta barn og ekki hægt að segja annað en að meðgangan fari henni vel.

Claudia Jordan sat í dómnefnd. Hún var með einstaklega flottan varalit við tilefnið.

Nýkrýnd Ungfrú heimur, Olivia Culpo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×