Tíska og hönnun

Í hverju er manneskjan?

MYNDIR / COVER MEDIA
Twilight-stjörnunni Kristen Stewart var ekki kalt þegar hún gekk um á rauða dreglinum á fimmtudagskvöldið þegar nýjasta mynd hennar On the Road var sýnd.

Kristen klæddist kjól frá tískumerkinu Erdem sem huldi afar fátt og var í neonappelsínugulum hælum við. Þetta lúkk er með eindæmum furðulegt og mjög ólíkt því sem Kristen klæðist vanalega.

Það er erfitt að botna í þessu fatavali.
Kristen fær plús í kladdann fyrir förðunina sem var haldið í lágmarki og var hárið greitt í tagl.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.

Kirsten og Kristen.
Þessi umtalaða leikkona stillti sér meðal annars upp með meðleikkonu sinni í myndinni, Kirsten Dunst, en Kirsten valdi talsvert hefðbundnara lúkk – einskonar jakkakjól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×