Körfubolti

Jackson hissa þegar Lakers réð D'Antoni

Phil Jackson.
Phil Jackson.
Það kom mörgum í opna skjöldu í gær þegar LA Lakers gaf það út að félagið væri búið að semja við Mike D'Antoni um að taka við liðinu. Var þá ekki annað vitað en félagið væri bara að ræða við Phil Jackson um að taka við liðinu í þriðja sinn.

Tíðindin komu líka Jackson á óvart enda var hann enn að ræða við Lakers og átti eftir að gefa þeim sitt svar er félagið tilkynnti allt í einu að það væri búið að ráða D'Antoni.

"Við áttum jákvæðar viðræður þar sem ég tjáði þeim að ég teldi mig geta sinnt starfinu á nýjan leik. Við vorum ekkert búnir að ræða peninga. Þeir gáfu mér frest fram á mánudag til þess að svara þeim," sagði Jackson.

"Ég er svo vakinn á miðnætti á sunnudag og þá er mér tjáð að þeir séu búnir að ráða D'Antoni. Það var þeirra ákvörðun og þeir hafa fullan rétt á henni."

Jackson átti bókað flug til LA í gær en hann þurfti ekki að nýta það þar sem Lakers ákvað að fara aðra leið.

Þjálfarinn var eðlilega hissa á þessari atburðarrás því hann var á leið í samningsviðræður við félagið.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×