"Ég er Ólafía Arndís Jónsdóttir, þrettán ára ritsnillingur“ Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar 19. nóvember 2012 13:32
Reisubók Ólafíu Arndísar Kristjana Friðbjörnsdóttir. Myndskreytingar: Margrét A. Laxness. JPV Útgáfa Kristjana Friðbjörnsdóttir hlaut Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur 2011 fyrir fyrstu bók sína um hana Ólafíu Arndísi, Flateyjarbréfin. Þar skrifar Ólafía bréf til kennara síns meðan hún er í sumarfríi á Flatey. Ári seinna er Ólafía flutt til Dalvíkur og heldur þar dagbók, í Dagbók Ólafíu Arndísar. Og nú er Ólafía farin í ferðalag með ömmu sinni. Í Reisubók Ólafíu Arndísar skrifar hún fjölskyldu sinni og þeim vinum sem hún eignaðist í fyrri bókum löng bréf á nýju spjaldtölvunni sinni. Amma Hrönn Gyða leggur upp í reisu sína til að heimsækja alla pennavini sína áður en hún deyr. Hún dregur Ólafíu með sér á húsbílnum Guddu í ævintýraferð um Austfirðina og Skán í Svíþjóð. Í förina bætast svo við æskuvinkona ömmu, Gríma, og Indía, jafnaldra Ólafíu sem býr yfir sorglegu leyndarmáli. Reisubók Ólafíu Arndísar er lauflétt bók yfirlestrar. Ólafía er skemmtilegur sögumaður og mikil gleði einkennir frásögnina. Fíngerðar myndskreytingar Margrétar E. Laxness lífga svo upp á textann, þó þær bæti kannski engu sérstöku við söguna. Vinskapur og líf kvenna er þungamiðja bókarinnar. Amma Hrönn Gyða heimsækir æskuvini sína og Ólafía ræktar sína vini í bréfum sínum, eignast nýja vini og heitir því í lok bókarinnar að halda við þeim vinskap. För Ólafíu, ömmu og Indíu endurspeglast svo í bókinni sem þær lesa allar saman á leiðinni, Reisubók Guðríðar Símonardóttur eftir Steinunni Jóhannesdóttur, bók sem segir frá ferðalögum Tyrkja-Guddu endur fyrir löngu. Tyrkja-Gudda og ferðalag hennar eru leiðarstef í bók Kristjönu. Ég velti fyrir mér hvort að þetta sé lokabókin í barnabókaflokknum um Ólafíu. Í lok bókar hefur fjölskylda hennar flutt enn á ný, í þetta skipti til Hveragerðis, og mætti ætla að þar gæti Ólafía ritað fjórða kaflann í lífsför sinni. En ég spyr mig hvort Ólafía Arndís sé orðin of gömul til að lifa góðu lífi milli spjalda barnabóka. Reisubók Ólafíu Arndísar er ætluð aldurshópnum 7-12 ára, en í lok bókar er Ólafía komin í gaggó. Ólafía virtist í bókinni eiginlega of saklaus, of hrekklaus til að vera komin á gelgjuna. Er kannski kominn tími á unglingabók um Ólafíu Arndísi? Niðurstaða: Skemmtileg ferðasaga 13 ára stúlku um Austfirði og Svíþjóð. Hressilega skrifuð, fyndin á köflum og fallega myndskreytt. Auðveld yfirlestrar, með stóru og skýru letri fyrir aldurshópinn 7-12 ára.
Gagnrýni Mest lesið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Lífið Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Lífið Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Tónlist Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Lífið Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Lífið Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Lífið Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Menning Klippt út af myndinni Lífið Þakkaði fyrir sig á íslensku Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Melódrama, morð og hæfilega mikið bótox Sunna Gunnlaugs í skugga karlrembu á djasshátíð Alien Romulus: Ungmenna Alien May December: Seint koma sumir en koma þó Sjá meira