Körfubolti

New York liðin fá ekki að mætast í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
New York Knicks og Brooklyn Nets mættust á undirbúningstímabilinu.
New York Knicks og Brooklyn Nets mættust á undirbúningstímabilinu. Mynd/Nordic Photos/Getty
New York borg á nú tvö lið í NBA-deildinni eftir að New Jersey Nets varð að Brooklyn Nets. Liðin áttu að mætast í Barclays Center, nýrri höll Brooklyn Nets, í kvöld en nú er búið að fresta leiknum vegna fellibylsins Sandy.

Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, bað NBA um að fresta leiknum þar sem samgöngukerfi borgarinnar er á öðrum endanum eftir storminn sem stoppaði meðal annars lestarkerfi miðborgarinnar. NBA ber ekki skylda til að fresta leiknum svo framarlega að lið og dómarar komist á staðinn en ákveðið var að verða við ósk borgarstjórans. Það er ekki búið að ákveða hvenær leikurinn fer fram.

„Þetta er frábær höll og þetta hefði verið frábær leikur. Málið er bara að það eru litlar samgöngur í gangi og lögreglan okkar hefur í nóg að snúast," sagði Michael Bloomberg á blaðamannafundi.

New York Knicks mun spila sinn fyrsta leik annað kvöld þegar NBA-meistarar Miami Heat koma í heimsókn í Madison Square Garden en Brooklyn Nets fær Toronto í heimsókn í Barclays Center á laugardaginn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×