Körfubolti

LeBron fékk loksins hringinn sinn - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James með hringinn sinn.
LeBron James með hringinn sinn. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James og félagar í Miami Heat hófu titilvörnina í NBA-deildinni með sigri á Boston í nótt en fyrir leikinn fengu þeir meistarahringana afhenta.

James var búinn að bíða í níu ár eftir því að fá hringinn sinn og stundin rann loksins upp í nótt. Hringarnir voru glæsilegir. Á þeim stóð með annars bæði "All In" eða "Allir saman" og "Family" eða "Ein fjölskylda" en auk þess voru myndir af Larry O'Brien bikarnum.

Ljósmyndarar á vegum Getty-myndabankans voru að sjálfsögðu á staðnum

og þeir náðu þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×