Tíska og hönnun

Best klæddu stjörnur vikunnar

Fimm flottar!
Fimm flottar!
Þá er komið að því að skoða best klæddu stjörnur vikunnar en þær voru svo sannarlega ekki af lakara taginu. Hin unga og fallega Elle Fanning klæddist síðkjól og mosagrænni jakkapeysu í retró stíl á meðan Gwyneth Paltrow fór gjörólíka leið með klassískum og kynþokkafullum Michael Kors kjól.

Skóvalið við kjólinn kom skemmtilega á óvart en hún klæddist hvítum hælum.Dita Von Teese var einnig glæsileg til fara í vínrauðum silkikjól sem minnti á gamla tíma. Lea Michele vakti mikla athygli með djörfu kjólavali sínu en kjóllinn var gegnsær og undir honum klæddist hún svartri samfellu. Síðast en ekki síst var það ofurfyrirsætan Alessandra Ambrosio sem komst á listann yfir þær best klæddu en hún var í glæsilegum ljósum silkikjól í Marilyn Monroe stíl.

Dæmi svo hver fyrir sig um það hver er sú best klædda.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×