Körfubolti

Kobe kominn á meiðslalista Lakers

LA Lakers varð fyrir áfalli á sunnudag er stærsta stjarna liðsins, Kobe Bryant, meiddist. Hann mun ekki taka frekari þátt í undirbúningstímabilinu.

Kobe meiddist í leik gegn Sacramento Kings en hann er slæmur í hægri fæti.

Læknar Lakers hafa ákveðið að hvíla hann þar til tímabilið byrjar en fyrsti leikur er 30. október. Hann fær því níu daga hvíld hið minnsta.

Ekki er enn víst að hann spili fyrsta leik tímabilsins en staðan verður tekin á honum þá.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×