Körfubolti

Ég vil verða besti körfuboltamaður allra tíma

Ofurstjarnan LeBron James náði stórum áfanga á síðustu leiktíð í NBA-deildinni er hann vann sinn fyrsta titil. Hann er samt ekki saddur og vill meira.

"Ég vil vera besti körfuboltamaður allra tíma. Það er ekkert flóknara en það," sagði James kokhraustur í viðtali við AP en hann telur að einn meistaratitill sé ekki nóg til að hann geti gert kröfu um slíkan titil.

"Fullt af fólki mun alltaf segja að ég geti ekki unnið fleiri titla. Tíminn mun leiða í ljós hvort mér takist það. Nú vitum við hvað þarf til þess að vinna titil. Það mun hjálpa í vetur."

NBA-tímabilið hefst eftir helgina.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×