Heilsa

Sport Elítan: Hið ósýnilega - ráðleggingar frá Röggu Nagla

Ragnhildur Þórðardóttir.
Ragnhildur Þórðardóttir.
Sport Elítan er hópur rúmlega 20 einstaklinga sem að hefur það að markmiði að bæta heilsu Íslendinga og hjálpa íþróttamönnum að ná lengra með því að bjóða uppá fjarþjálfun fyrir einstaklinga. Vísir og Sport Elítan verða í samstarfi frá og með deginum í dag og munu allir pistlar og hugleiðingar hópsins birtast á Vísi. Ragnhildur Þórðardóttir einkaþjálfari skrifar fyrsta pistilinn en hún er betur þekkt sem „Ragga Nagli."

Ertu ein(n) af þeim sem byrjar daginn ofan á vigtinni með kökk í hálsi, klípur í kvið átján sinnum á dag, og grætur yfir spegilmyndinni. „Undirhakan er of síð, appelsínubörkur á lærunum og múffutoppinn mætti selja í næsta bakaríi."

Um hvað snýst lífsstíllinn þinn eiginlega? Gallabuxnastærð og kílóatölu? Horleggi og kinnfiskasog?

Kíló, sentimetrar, grömm, fatastærðir, gatið á beltinu. Sjálfskipuð og samfélagsleg viðmið sem ákvarða lífshamingjuna og niðurrif á stjarnfræðilegum mælikvarða yfir að ná þeim ekki á núll einni.

Ef lýsislekinn er ekki í takt við hækkun bensínverðs er lífshamingjan í tojlettinu.

Ef kílóin hypja sig ekki á hraða örbylgjunnar er allt eins gott að hætta þessu heilsukjaftæði og taka aftur upp sjoppulífið.

„Áttu hamborgara? Júmbó? Örbylgjuofn? Fá einn heitan hamborgara... og eina kók... og brenni"

En hvað með allar dásamlegu breytingarnar sem eru að gerast inni í maskínunni?

Þegar Naglinn fær árangurssögur frá sínum skjólstæðingum er vitnisburður um hið ósýnilega enn gleðilegri en frásagnir af smjörplokki.

„Það er ekki bara mörinn sem lekur, gríðarlegar bætingar í blóðþrýstingi og púls. Var 140/71 í blóðþrýstingi og púls 68 þegar ég byrjaði að breyta lífsstílnum. Er núna 114/63 í blóðþrýstingi og púls er 59."

„Ég er með PCOS sem eru fjölblöðrueggjastokkar og hef sjaldan egglos. Kvensjúkdómalæknirinn sagði að ég gæti aukið líkurnar ef ég kæmi mér í kjörþyngd. Ég fer í fjarþjálfun og búmm… ári seinna er ég komin í kjörþyngd OG orðin ófrísk."

„Heildarkólesteról minnkað í 4,4, úr 7,2 LDL úr 4.2 í 3,0 og læknirinn hefur minnkað blóðfitulækkandi lyfið úr 80mg í 10mg á innan við ári og þakkar það lífsstílsbreytingunum."

„Ég er orðin miklu sterkari en ég var. Get núna gert armbeygjurnar sem eru í prógramminu sem ég fékk og finnst það ekkert sérstaklega erfitt. Gat ekki eina armbeygju áður."

„Fann hvað það er mikilvægt að vera sterkur í venjulegri líkamlegri vinnu...miðjan er t.d. vel virkjuð við að skakast á eldgamalli dráttarvél hring eftir hring á ójöfnu túni og gott að hafa sterka handleggi þegar ekkert er vökvastýrið á Massey Ferguson traktornum!"

„Ég finn fyrir því að kviðurinn er orðinn sterkari og það er auðveldara að halda á Bónuspokum upp fjórar hæðir"

„Menn í körfuboltanum hafa haft orð á því að það sé "hundleiðinlegt" að dekka mig og ég geti orðið hreyft mig allt of mikið!"

Því miður einblínum við alltof oft á hið ytra þegar við mælum árangur af erfiðinu.

Það er náttúrulega ekki minnst orði á þessa innri þætti í árangurssögum miðlanna þar sem hraði lýsislekans brýtur hljóðmúrinn.

Ósýnilegi árangurinn sem skiptir svo miklu meira máli en sentimetrarÓsýnilegi árangurinn sem skiptir svo miklu meira máli en sentimetrar og grömm er sópað undir teppi eins og Það sem enginn sér... söng Daníel Ágúst fyrir Íslands hönd 1989... og enginn sá stig.

Að vera hreyfanlegri, með betra þol og úthald þýðir að hjarta- og æðakerfið er orðið effektífara, sem þýðir betra blóðflæði, lægri blóðþrýstingur, sterkari æðaveggir, lægri blóðfita....ergó betri heilsa.

Næst þegar þú skælir yfir að vigtin haggist ekki þá vikuna, hugsaðu um þessar varanlegu breytingar á heilsunni sem eru svo miklu mikilvægari ástæða til að haldast í lífsstílnum.

Hefur þú efni á að kasta inn handklæðinu og leggjast aftur í sukkið?

Kjúllabringur svo dýrar og kort í ræktina óþarfa pjatt fyrst ég massast ekki í drasl á fyrstu vikunum.

Þú vilt þá kannski frekar eyða þessum peningum í lyfjakostnað síðar?

Sport Elítan Fjarþjálfun : Heimasíða

Sport Elítan Fjarþjálfun : Facebook síða



Eftirtaldir skipa hópinn sem stendur á bak við Sport Elítuna:

AlexanderPetersson (handknattleiksmaður)

ArnarGrant (einkaþjálfari)

AronEinarGunnarsson (knattspyrnumaður)

Björgvin Páll Gústavsson (handknattleiksmaður)

Edda Garðarsdóttir (knattspyrnukona)

EinarHólmgeirsson (handknattleiksmaður)

EinarIngiKristjánsson (einkaþjálfari)

GeirGunnarMarkússon (næringarfræðingur)

HelenaSverrisdóttir (körfuknattleikskona)

HelgaMargrètÞorsteinsdóttir (frjálsíþróttakona)

HelgiJónasGuðfinnsson (körfuknattleiksþjálfari)

HermannHreiðarsson (knattspyrnumaður)

HlynurBæringssson (körfuknattleiksmaður)

IngimundurIngimundarson (handknattleiksmaður)

JónArnórStefánsson (körfuknattleiksmaður)

RagnhildurÞórðardóttir (einkaþjálfari)

RúrikGíslason (knattspyrnumaður)

SiljaÚlfarsdóttir (einkaþjálfari)

StefánSölviPétursson (kraftlyftingarmaður)

VilhjálmurSteinarsson (einkaþjálfari)

YesmineOlsson (einkaþjálfari).








×