Tíska og hönnun

Nautnalegir á nærbuxunum

MYNDIR / COVER MEDIA
Þeir eru margir Hollywood-hönkarnir sem hafa auglýst nærfatnað. Eins og gefur að skilja eru þeir langt frá því að vera kappklæddir þegar þeir skella sér í módelhlutverkið.

Leikarinn Mark Wahlberg auglýsti nærbuxur fyrir Calvin Klein í byrjun ferilsins en sýnir nú bara byssurnar í hasarmyndum.

Kíkið á myndasafnið hér

Ungstirnið Kellan Lutz hefur líka stigið í fyrirsætufótsporin sem og íþróttamennirnir Rafael Nadal og Cristiano Ronaldo.

Ókrýndur kóngur nærfataauglýsinga er samt sem áður fótboltagoðið David Beckham sem hefur bæði setið fyrir einn og sér fyrir H&M og líka með eiginkonu sinni, Victoriu Beckham, fyrir Emporio Armani.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.