Körfubolti

Knicks verður með elsta lið sögunnar

Kidd er kominn til Knicks. Hann verður fertugur í lok mars.
Kidd er kominn til Knicks. Hann verður fertugur í lok mars.
Það verður væntanlega enginn sandkassaleikur á æfingum hjá NY Knicks í vetur enda stefnir í að liðið muni tefla fram elsta liði í sögu NBA-deildarinnar.

Ef Rasheed Wallace, sem er 38 ára, semur við liðið verður meðalaldur leikmannahópsins 32 ár og 240 dagar.

Gömlu kallarnir í liðinu eru Raymond Felton, sem er að verða 40 ára, Jason Kidd, fertugur í mars á næsta ári, Marcus Camby er 38 ára og nýliði liðsins er Argentínumaðurinn Pabli Prigioni en hann er orðinn 35 ára.

"Það er ákveðinn lúxus að vera með reynslumikið lið því þessir strákar þekkja þetta allt saman," sagði þjálfarinn Mike Woodson hæstánægður.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×