Tíska og hönnun

Eldgamlar módelmyndir af Victoriu Beckham

MYNDIR / COVER MEDIA
Kryddpían Victoria Beckham er með smartari konum í heiminum. En hún lenti samt líka í þeirri hræðilegu tísku sem var boðið upp á snemma á tíunda áratugnum eins og sést á þessum gömlu myndum sem teknar voru árið 1992.

Á þessum tíma var Victoria ekki enn þekkt sem fína kryddið og fór í myndatöku hjá Geoff Marchant aðeins átján ára gömul. Hún var að reyna að fikra sig áfram á fyrirsætu- og leiklistarbrautinni og bauð upp á nokkrar stellingar í anda kvikmyndarinnar Flashdance.

Sitthvað hefur breyst síðan þessar myndir voru teknar. Victoria er nú gift einum þekktasta knattspyrnumanni í heimi, David Beckham og er meðal virtustu fatahönnuða í bransanum. Einhvers staðar verður maður að byrja!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×