Körfubolti

Jordan og Pippen fóru í danskeppni

Scottie Pippen, fyrrum leikmaður Chicago Bulls, er orðinn 47 ára gamall og var honum komið á óvart með óvæntri afmælisveislu í Chicago í gær.

Þar var margt um manninn. Sjónvarpsmaðurinn Ahmad Rashad fór mikinn en kóngurinn í teitinu var að sjálfsögðu Michael Jordan sem lék í mörg ár með Pippen hjá Bulls. Þeir mynduðu líklega besta tvíeyki deildarinnar frá upphafi.

Menn voru almennt í góðu glensi í teitinu sem náði hámarki er Jordan og Pippen báðu alla vinsamlega um að yfirgefa dansgólfið. Þeirra tími á gólfinu var kominn.

Þeir félagar gerðu sér nefnilega lítið fyrir og fóru í danskeppni, gestum til mikillar gleði.

Því miður hafa ekki borist fréttir af því hvor þeirra vann danskeppnina.

Vísir sendir ykkur þó inn í helgina með þessu skemmtilega myndbandi af Pippen, Jordan og fleiri góðum að dansa. Það má sjá hér að ofan.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×