Körfubolti

Prokhorov ætlar ekki að rappa með Jay-Z

Prokhorov ætlar að láta sér nægja að sötra á kampavíni og fylgjast með stemningunni.
Prokhorov ætlar að láta sér nægja að sötra á kampavíni og fylgjast með stemningunni.
Hinn moldríki eigandi Brooklyn Nets í NBA-deildinni, Mikhail Prokorov, hefur afþakkað tilboð rapparans, Jay-Z, um að taka lagið með sér.

Jay-Z, sem á einnig í félaginu, ætlar að standa fyrir mikilli gleði á nýjum heimavelli félagsins á næstunni og vildi endilega fá Rússann ríka til þess að rappa með sér.

"Ég ber mikla virðingu fyrir rappi en er samt ekki mikill aðdáandi. Það kom mér algjörlega á óvart að fá boð um að rappa. Ég ætla að sleppa þessu þar sem ég gæti skaðað feril Jay-Z varanlega," sagði Rússinn léttur.

Þessi tíðindi eru samt mikil vonbrigði fyrir þá fjölmörgu sem biðu spenntir eftir að sjá Rússann rappa.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×