Tíska og hönnun

Gwen Stefani klikkar aldrei á dressinu

COVERMEDIA
Það virðist vera alveg sama hvar og hvenær ljósmyndarar góma söngkonuna Gwen Stefani hún er alltaf vel til höfð, smart klædd og með vörumerkið á sínum stað sem er rauði varaliturinn.

Að þessu sinni var það á flugvellinum í Los Angeles sem söngkonan var mynduð en hún var á leið í flug með syni sínum, Kingston Rossdale.

Til að toppa dressið að þessu sinni bar Gwen fallegan hatt og stór sólgleraugu en hattar verða mjög áberandi í vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×