Tónlist

Rokkarar fá Rokkjötnahúðflúr

Listakonan býður upp á sérstakt Rokkjötnahúðflúr á hátíðinni Rokkjötnar á laugardaginn
Listakonan býður upp á sérstakt Rokkjötnahúðflúr á hátíðinni Rokkjötnar á laugardaginn Fréttablaðið/vilhelm
Listakonan Ýrr Baldursdóttir mun bjóða gestum tónlistarhátíðarinnar Rokkjötnar upp á ókeypis "airbrush-Rokkjötnatattú" sem síðar verður hægt að þvo af sér.

"Þú þarft ekki að sjá eftir því þótt þú sért kominn í glas að hafa skellt á þig rokktattúi," segir Ýrr. Þeir sem verða ánægðir með útkomuna og vilja fá alvöru Rokkjötnahúðflúr geta bókað sig á tónleikunum og mætt síðar meir á stofuna hennar. Þar fá hátíðargestir 75% afslátt af húðflúrinu.

"Airbrush" er nokkurs konar líkamsmálning sem einnig er hægt að spreyja á föt. "Þetta tekur mun styttri tíma en nálin og er mun sársaukaminna," segir Ýrr. Listakonan málaði í sumar fyrir rokkarana í Skálmöld handsmíðaðan gítar af tegundinni Fender sem verður boðinn upp á Rokkjötnum, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Allur ágóðinn rennur til samtakanna Blátt áfram.

"Þetta er frábært málefni og það er mikilvægt að vekja fólk til umhugsunar um það." Átta íslenskar rokksveitir stíga á svið á Rokkjötnum í Kaplakrika á laugardaginn, þar á meðal Ham, Skálmöld og Sólstafir.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.