Matur

Karamellupopp kynfræðingsins

Sigga Dögg kynfræðingur deilir helgaruppskriftinni að þessu sinni.
Sigga Dögg kynfræðingur deilir helgaruppskriftinni að þessu sinni.

Sigga Dögg eins og hún vill láta kalla sig deilir hér með með uppskrift að leynipoppinu sínu! „Þetta ­klikkar aldrei," segir kynfræðingurinn hressi.

Karamellupopp kynfræðingsins

225g smjör

440g púðursykur

120ml síróp

1 tsk. salt

½ tsk. matarsódi

1 tsk. vanilludropar

220g poppað popp

1. Ofn hitaður í 95 gráður.

2. Í potti bræðirðu smjör, púðursykur, síróp og salt þar til það er orðið að karamellu (passaðu að hræra reglulega). Láttu suðuna koma upp og sjóða í 4 mínútur.

3. Settu poppið á tvær bökunarplötur og hafðu inni í ofni þar til karamellan er til.

4. Taktu karamelluna af hit­anum, settu matarsóda og vanilludropa út í og helltu yfir poppið.

5. Settu poppið inn í heitan ofninn og á 15 mínútna fresti í klukkustund skaltu nota sleif til að hræra í poppinu. Láttu poppið kólna áður en þú setur það í krukku.

Frábært í hvaða boð sem er og geymist vel í þéttri krukku!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.