Tónlist

Ólafur Arnalds semur lag fyrir Emmu Watson

Ólafur Arnalds, Emma Watson ásamt sameiginlegum vini í hljóðverinu.
Ólafur Arnalds, Emma Watson ásamt sameiginlegum vini í hljóðverinu. mynd/twitter-síða Ólafs Arnalds
Leikkonan Emma Watson hefur ekki setið auðum höndum á milli þess sem hún er í fríi frá tökum á myndinni Noah því síðustu daga hefur hún verið í hljóðveri að taka upp lag með tónlistarmanninum Ólafi Arnalds.

Samkvæmt heimildum Vísis hafði umboðsmaður Emmu samband við Ólaf fyrir skemmstu og viðraði þá hugmynd um að þau myndu gera lag saman. Það virðist allt saman hafa gengið eftir því um helgina eyddu þau tíma í hljóðveri og tóku upp lag.

Leikkonan hefur ekki reynt fyrir sér í tónlistinni áður og því verður spennandi að sjá hvernig henni tekst til á þeim vettvangi.

Ólafur og Emma eru ágætis kunningjar og í samtali við DV í síðustu viku sagði Ólafur að þau ættu sameiginlegan vin. Emma sagði svo á Twitter-síðu sinni á dögunum að hún „elskaði" Ólaf Arnalds, Sóley og Of Monsters and Men.

Á vefsíðunni Ewcoffeebreak's eru birtar myndir af þeim saman í hljóðverinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.