Tónlist

Umboðsmaður Blur á leiðinni

Chris Morrison ásamt Damon Ablarn, söngvara Blur.
Chris Morrison ásamt Damon Ablarn, söngvara Blur. nordicphotos/getty
Chris Morrison, sem starfaði lengi sem umboðsmaður bresku hljómsveitanna Blur og Gorillaz, verður meðal fyrirlesara á fræðslukvöldi ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, í Norræna húsinu 10. september. Þar verður umboðsmennska umfjöllunarefnið.

Heather Kolker, umboðsmaður Of Monsters and Men, verður einnig meðal fyrirlesara. Hún starfar jafnframt sem bókari fyrir hljómsveitir á borð við MGMT og Edward Sharpe & The Magnetic Zeros.

"Hún ætlar að segja söguna af sér og hvernig þetta kom til með Of Monsters and Men," segir Tómas Young hjá ÚTÓN um Kolker. Hann er afar ánægður með þátttöku þeirra beggja.

"Við vorum mjög ánægð með að allt gekk upp. Hún verður á landinu á þessum tíma og hann verður á leiðinni til New York þannig að við gripum hann á leiðinni." Morrison fór á síðustu Iceland Airwaves-hátíð og á Aldrei fór ég suður og þekkir því vel til íslenskrar tónlistar.

Á fræðslukvöldinu verða einnig haldnar hringborðsumræður með Morrison, Kolker og þeim Grími Atlasyni, umboðsmanni Retro Stefson, og Maríu Rut Reynisdóttur, umboðsmanni Hjálma og Ásgeirs Trausta.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.