Tónlist

Dýfir sér í kraumandi pott

Jakob Frímann Magnússon verður í hlutverki Jack Magnet í Hörpu á laugardagskvöld
Jakob Frímann Magnússon verður í hlutverki Jack Magnet í Hörpu á laugardagskvöld
Tónlistarmaðurinn Jakob Frímann Magnússon er aðalsprauta Jack Magnet-djasskvintettsins, sem spilar nýtt efni í bland við eldra í Hörpu á laugardagskvöld á Jazzhátíð Reykjavíkur.

"Kvintettinn er kenndur við Jack Magnet en hann fleytir rjómann af því besta af sólóplötum mínum sem hafa komið út undir ýmsum nöfnum," segir Jakob Frímann.

Með honum á tónleikunum spila þeir Einar Scheving, Jóel Pálsson, Guðmundur Pétursson og Róbert Þórhallsson. "Ég er að dýfa bæði fingrum og tám í kraumandi pott tónlistaráhrifa sem hafa mótað mig og með mér í pottinum eru risar. Ef við værum í frumskógi Afríku á tímum Davids Livingstone væru ýmsir girnilegir bitar í þessum potti og þá girnilegri en Jack Magnet."

Jack Magnet-kvintettinn kom saman í Þjóðleikhúsinu á minningartónleikum um Kristján Eldjárn fyrr á árinu og leiddi til áframhaldandi samstarfs.

"Okkur fannst, og mörgum öðrum, óskaplega skemmtilegt það sem þar gerðist. Það var kveikjan að því að það var hljóðritað nýtt efni og að þessum tónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur," segir Jakob, sem er óviss hvenær ný plata lítur dagsins ljós.

"Það er enginn fastur meðgöngutími á plötum eins og börnum. Ég vildi að maður gæti sett í og níu mánuðum síðar fæðist platan en þetta er ekki svo einfalt."

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.