Tónlist

Sjáðu Þórunni og Elmar ástfangin í London

Vísir frumsýnir hér nýjasta myndband Þórunnar Antoníu við lagið So High. Í því leika Þórunn og fyrirsætan Elmar Johnson ástfangið par í helgarferð í London.

„Þetta var æðislega gaman og góður hópur. Þau eru algjört fagfólk þannig þetta gat ekki klikkað," sagði Elmar í viðtali við Fréttablaðið á dögunum og bætti við að tenging hafi myndast auðveldlega milli hans og Þórunnar. „Það var engin kvöð að þykjast vera ástfanginn af henni."

Myndbandið er gert af Narvi Creative, sem er skipað Ellen Loftsdóttur og Þorbirni Ingasyni. Þau gerðu einnig myndband Gusgus við lagið Over í fyrrasumar. Einn reyndasti tökumaður landsins, Ágúst Jakobsson, skaut myndbandið.

Lagið So High er af nýrri plötu Þórunnar, Star-Crossed, sem kom út fyrir skemmstu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.