Lífið

Beyonce og Jay-Z launahæsta parið

Mynd/COVERMEDIA
Nýbökuðu foreldrarnir og ofurparið Beyonce Knowles og Jay-Z tróna nú á toppi Forbes' listans yfir launahæsta parið í skemmtanabransanum en þau hafa farið hratt upp þann lista undanfarið.

Skýringin er meðal annars sú að nokkur pör hafa dottið af listanum á skömmum tíma. Ber þar fyrst að nefna þau Tom Cruise og Katie Holmes sem skildu eftir Íslandsdvöl leikarans ekki alls fyrir löngu. Einnig hvarf Twilight parið Robert Pattinson og Kristen Stewart snögglega af listanum eftir að upp komst um framhjáld Stewart.

Pörin sem sitja í fimm efstu sætunum ásamt þeim Beyonce og Jay -Z eru þau Gisele Bundchen og Tom Brady, David og Victoria Beckam, leikarahjónin Brad Pitt og Angelina Jolie og að lokum Will Smith og Jada Pinkett-Smith.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.