Körfubolti

Howard gæti farið til Nets eftir allt saman

Skrípaleikurinn í kringum framtíðaráform Dwight Howard er enn í fullum gangi og körfuboltaáhugamenn flestir komnir með upp í kok af fréttum af Howard.

Það hefur lengi verið í kortunum að hann væri á leiðinni til Brooklyn Nets en fyrir nokkrum dögum leit út fyrir að sá draumur væri dáinn.

Menn hafa þó ekki gefist upp og nú gæti farið svo að hann endaði hjá Nets eftir allt saman í samningi þar sem fjögur félög koma að málum.

Samkvæmt heimildum ESPN er nokkuð líklegt að þessi flétta gangi eftir og þá verður loksins hægt að fjalla um möguleg vistaskipti leikmannsins sem hefur lengi viljað komast frá Orlando. Mjög lengi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×