Körfubolti

Lin samdi við Houston | Knicks getur jafnað tilboðið

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum bandarískra fjölmiðla þá hefur leikstjórnandinn Jeremy Lin skrifað undir þriggja ára samningstilboð frá Houston Rockets. Samningurinn er talinn vera 25 milljón dollara virði.

Þó svo Houston hafi náð samningum við Lin þýðir það ekki að hann fari þangað. NY Knicks hefur þrjá daga til þess að jafna tilboðið.

Lin æfði aðeins með Rockets fyrir síðasta tímabil en þá hafði félagið ekki áhuga á honum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×