Körfubolti

Jeremy Lin endar líklega í Houston

Jeremy Lin mun líklega leika með Houston Rockets á næstu leiktíð í NBA deildinni.
Jeremy Lin mun líklega leika með Houston Rockets á næstu leiktíð í NBA deildinni. AP.
Leikstjórnandinn Jeremy Lin vakti gríðarlega athygli á síðustu leiktíð með liði New York Knicks í NBA deildinni í körfuknattleik. Algjört æði greip um sig í New York og víðar þegar nýliðinn sýndi snilldartakta með liði sínu eftir að hafa fengið óvænt tækifæri í byrjunarliðinu vegna meiðsla lykilmanna.

Lin er hinsvegar á förum frá New York þar sem að forráðamenn liðsins vildu ekki semja við hann á þeim kjörum sem honum býðst hjá Houston Rockets. Lin mun að öllum líkindum leika undir stjórn Kevin McHale sem var á sínum tíma einn besti framherji veraldar sem leikmaður gullaldarliðs Boston Celtics á níunda áratug síðustu aldar.

Lin mun fá um 25 milljónir dollara í laun fyrir þriggja ára samning eða sem nemur um þremur milljörðum kr.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×