Körfubolti

Nash nálgast Knicks

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Steve Nash ásamt Thierry Henry í ágóðaknattspyrnuleik á dögunum.
Steve Nash ásamt Thierry Henry í ágóðaknattspyrnuleik á dögunum. Nordicphotos/Getty
Leikstjórnandinn Steve Nash, leikmaður Phoenix Suns í NBA-körfuboltanum, er sterklega orðaður við New York Knicks í bandarískum fjölmiðlum í dag.

AOL og ESPN greina frá því að líklegt sé að Iman Shumpert sé stærsti bitinn sem Phoenix fengi í skiptisamningi við New York-liðið. Heilddarvirði skiptanna er talið vera í kringum 25 milljónir dollara eða sem nemur 3,2 milljörðum íslenskra króna.

Auk Shumpert er talið líklegt að Toney Douglas og þrír minni spámenn myndu færa sig um set til Phoenix. ESPN telur að Josh Harrellson og Jerome Jordan séu líklegastir í þeim efnum.

Toronto Raptors og Dallas Mavericks hafa ekki sagt sitt síðasta orð í eltingarleiknum við hinn 38 ára gamla Nash og hefur Toronto-liðið boðið Nash 36 milljóna dollara samning.

Jeremy Lin hefur verið í viðræðum við Houston Rockets og á von á tilboði frá liðinu. AOL telur þó að New York muni jafna tilboð Houston-liðsins jafnvel þótt Nash komi til félagsins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×