Körfubolti

Del Negro verður áfram með Clippers

Forráðamenn LA Clippers hafa staðfest að Vinny del Negro verði áfram þjálfari félagsins næsta vetur. Del Negro náði besta árangri í sögu félagsins með liðið í vetur.

Clippers nýtti sér ákvæði í samningi til þess halda þjálfaranum en Del Negro er með lausan samning að ári. Portland hefur þegar sýnt áhuga á að fá hann þá.

Clippers vann 40 leiki í vetur en tapaði 26 sem gerir 60,6 prósent vinningshlutfall. Slíkt hlutfall hafa stuðningsmenn Clippers ekki séð áður.

"Það er spennandi að halda þessu áhugaverða verkefni áfram," sagði Del Negro.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×