Körfubolti

Boston lagði Philadelphia í oddaleiknum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þessi stuðningsmaður Celtics var kokhraustur í TD Garden - höllinni í nótt.
Þessi stuðningsmaður Celtics var kokhraustur í TD Garden - höllinni í nótt. Nordic Photos / Getty
Boston Celtics tryggði sér í nótt sæti í úrslitum austurdeildar NBA-körfuboltans eftir tíu stiga sigur á Philadelphi 76ers í oddaleik í Boston.

Skotbakvörðurinn Rajon Rondo fór fyrir liði Boston á lokamínútunum. Rondo skoraði 18 stig, tók 10 fráköst og átti 10 stoðsendingar.

Margir telja að í ár sé síðasta tækifæri Boston-þríeykisins, Kevin Garnett, Paul Pierce og Ray allen, til þess að fara alla leið í keppninni. Liðið hefur tapað í úrslitum tvisvar á síðastliðnum fjórum árum.

Liðið mætir Dwyane Wade, Lebron James og félögum í Miami í Heat í úrslitum austurdeildar. Í úrslitum vesturdeildar mætast Oklahoma City Thunder og San Antonio Spurs.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×