Körfubolti

Ewing gæti farið í vinnu hjá Jordan

Lélegasta lið allra tíma í NBA-deildinni, Charlotte Bobcats sem er í eigu Michael Jordan, er í leit að nýjum þjálfara og meðal þeirra sem koma til greina er fyrrum miðherji NY Knicks, Patrick Ewing.

Ewing er aðstoðarþjálfari í Orlando. Hann er góður vinur Jordans og þeir hafa rætt málin. Einnig hefur verið rætt við aðstoðarþjálfara Golden State og Indiana.

Charlotte lauk keppni í vetur með árangurinn 7-59 eða 10,6 prósent vinningshlutfall. Það er það lélegasta í sögu NBA-deildarinnar.

Hver svo sem fær starfið á því svo sannarlega verk að vinna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×