Körfubolti

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Gasol var í stuði.
Gasol var í stuði.
Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í oddaleik. Boston vann svo fyrsta leikinn gegn Philadelphia í 2. umferð úrslitakeppninnar.

Stjörnu Lakers-liðsins stigu upp þegar á þurfti að halda og einnig munaði liðið mikið um að fá Heimsfriðinn aftur en hann spilaði vel og var aðallega frábær í vörninni.

Gasol líka magnaður með 23 stig og Andrew Bynum reif niður 18 fráköst. Lakers mætir Oklahoma í næstu umferð.

Rajon Rondo var með tvöfalda þrennu fyrir Boston og Kevin Garnett skoraði 29 stig er Boston vann upp 13 stiga forskot Philadelphia og náði sigri.

Andre Iguodala stigahæstur hjá Sixers með 19 stig.

Úrslit (staða í einvígi):

LA Lakers-Denver  96-87 (4-3)

Boston-Philadelphia  92-91 (1-0)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×