Körfubolti

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld.
LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á Memphis Grizzlies í oddaleik liðanna í kvöld.

Jafnt var á með liðunum nánast allan leikinn en Clippers þó lengstum skrefi á undan.

Þeir náðu álitlegu forskoti undir lokin. Þá gekk ekkert upp hjá Grizzlies og varla skot sem fór ofan í. Clippers kláraði svo leikinn á vítalínunni.

Rudy Gay og Marc Gasol allt í öllu í liði Memphis með 19 stig. Chris Paul stigahæstur hjá Clippers einnig með 19 stig.

Clippers mætir San Antonio Spurs í næstu umferð úrslitakeppninnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×