Körfubolti

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson.
Phil Jackson. AP
Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að sér lið í deildinni en hann tók sér frí frá þjálfun eftir síðasta keppnistímabil. Hinn 66 ára gamli Jackson hefur nýtt tímann til þess að láta laga á sér mjöðm og hné og er hann tilbúinn í slaginn að sögn sambýliskonu hans Jeanie Buss sem er dóttir Jerry Buss sem er eigandi LA Lakers.

Jeanie Buss sagði í útvarpsviðtali s.l. föstudag að Jackson „neistinn" væri kviknaður á ný hjá Jackson og hann biði nú bara eftir því að eitthvað lið hefði samband. Það er líklegt að Jackson fái fjölmörg tilboð því hann er með 11 meistaratitla sem þjálfari Chicago Bulls og LA Lakers og sigurleikir liða undir hans stjórn eru alls 1.155 sem er met.

Heilsufar Jackson var ekki upp á það besta á síðasta tímabili en hann hefur frá þeim tíma farið í tvær aðgerðir þar sem að hann fékk nýtt hné og nýjan mjaðmarlið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×