Körfubolti

Lakers í stuði en Chicago virðist vera á leið í sumarfrí

Leikmenn Lakers fagna í nótt.
Leikmenn Lakers fagna í nótt.
Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. NY Knicks framlengdi þá líf sitt í deildinni örlítið á meðan Lakers, Sixers og Boston eru einum sigri frá því að komast áfram í næstu umferð.

Boston pakkaði Atlanta saman þar sem Paul Pierce skoraði 24 stig fyrir Celtics. Carmelo Anthony skoraði 41 stig fyrir Knicks sem þar með forðaði því að vera sópað í frí af Miami.

Kobe Bryant skoraði 22 stig fyrir Lakers og átti stoðsendingu á Steve Blake sem síðan jarðaði leikinn gegn Denver með 40 sekúndur eftir. Danilo Gallinari stigahæstur hjá Nuggets með 20 stig.

Chicago er heillum horfið eftir að Derrick Rose og virðist vera á leið í frí. Spenceer Hawes skoraði 20 stig fyrir Philadelphia í nótt í þriðja sigri þeirra.

Carlos Boozer stigahæstur hjá Lakers með 23 stig og 11 fráköst.

Úrslit (staða i einvígi):

Philadelphia-Chicago  89-82 (3-1)

NY Knicks-Miami 89-87 (1-3)

Boston-Atlanta  101-79  (3-1)

Denver-LA Lakers  88-92 (1-3)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×