Körfubolti

Ölvuð kona óð út á völlinn í leik Lakers og Nuggets

Stórfyndið atvik átti sér stað í fjórða leik LA Lakers og Denver Nuggets í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Kona nokkur, sem augljóslega hafði verið nánu sambandi við Budweiser á leiknum, óð út á völlinn en þó ekki í beinni línu sökum ástands síns.

Ekki er ljóst hvað hún ætlaði sér eiginlega að gera en stöðva varð leikinn á meðan konan var fjarlægð.

Sjá má þessa stórskemmtilegu uppákomu á myndbandinu hér að ofan.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×