Körfubolti

Howard bíður eftir að komast frá Magic

Dwight Howard gerði sitt besta til þess að komast frá Orlando Magic fyrir þessa leiktíð en hafði ekki erindi sem erfiði. Líkurnar á því að hann verði enn leikmaður Orlando eftir sumarið eru nánast engar.

Heimildamenn ESPN segja að um leið og Magic er fallið úr úrslitakeppninni verði Howard mættur með beiðni um að fara frá félaginu. Því fyrr, því betra fyrir hann.

Miðherjinn stóri er afar ósáttur við þá meðferð sem hann hefur fengið hjá félaginu en hann vill meina að félagið hafi sýnt sér mikla óvirðingu í allan vetur.

Liðsfélagar hans hafa gefið skít í hann og Magic hefur gert alla hluti erfiða. Eru ekki til í að koma fram við hann eins og stórstjörnu og það er sagt fara mikið í taugarnar á Howard.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×