Körfubolti

Sigur hjá Chicago en Rose meiddist

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr leik liðanna í Chicaco í dag.
Úr leik liðanna í Chicaco í dag. Nordic Photos / Getty Images
Chicago Bulls lagði Philadelphia 76ers örugglega 103-91 í fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar sem hófst í dag.

Derrick Rose var stigahæstur heimamanna með 23 stig og átti frábæran leik. Hann meiddist þó á hné seint í leiknum og útlitið ekki gott hjá kappanum sem hefur verið mikið frá í vetur vegna meiðsla.

Richard Hamilton kom næstur hjá heimamönnum með 19 sig og Luol Deng skoraði 17 stig. Hjá gestunum var Elton Brand atkvæðamestur með 19 stig.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×