Körfubolti

LeBron sjóðandi heitur í stórsigri Miami á New York

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þessi stuðningsmaður Miami var ánægð með sína menn í gær.
Þessi stuðningsmaður Miami var ánægð með sína menn í gær. Nordic Photos / Getty
Lebron James fór á kostum með Miami Heat sem rúllaði yfir New York Knicks í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni sem fram fór í gær. Lokatölurnar urðu 100-67 Miami í vil.

Miami hafði frumkvæðið frá upphafi og leiddi með 23 stigum í hálfleik. Þeir juku við forskotið í síðari hálfleik og tryggðu sér sigur og forsytuna í einvígi liðanna, 1-0.

LeBron skoraði 32 stig, hitti úr 11 af 15 skotum sínum þar af eina þriggja stiga skoti sínu. Dwyane Wade kom næstur með 19 stig.

Hjá gestunum frá New York var J.R. Smith atkvæðamestur með 17 stig. Hann var um leið eini leikmaður liðsins sem náði tveggja stafa stigatölu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×