Körfubolti

Krakkarnir hans Malone slá í gegn í íþróttum

Malone nýtur lífsins þessa dagana.
Malone nýtur lífsins þessa dagana.
Það verður ekki annað sagt en að gamla körfuboltahetjan Karl Malone standi sig vel í að ala upp afreksmenn í íþróttum.

Dóttir hans, Cheryl Ford, hefur átt farsælan feril í WNBA-deildinni og yngri dóttir hans, Kadee, er að fara að spila körfubolta í sterkum háskóla. Hún gæti jafnvel endað síðar í WNBA.

Sonur hans, Karl Malone yngri, er aftur á móti í ruðningnum og er eftirsóttur. Hann hefur nú ákveðið að spila með LSU-háskólanum sem hefur alltaf státað að sterku ruðningsliði.

Malone eldri, sem er í heiðurshöll körfuboltans, má svo sannarlega vera stoltur af afkvæmum sínum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×