Körfubolti

Stuðningsmenn Kentucky veltu við bílum og kveiktu í sófum

Þessir stuðningsmenn Kentucky fögnuðu á hógværan máta.
Þessir stuðningsmenn Kentucky fögnuðu á hógværan máta.
Stuðningsmenn Kentucky-háskólans gengu af göflunum síðustu nótt þegar körfuboltalið skólans hafði tryggt sér sæti í úrslitaleik háskólaboltans.

Þúsundir flykktust út á göturnar við skólann þar sem sigrinum var fagnað með því að velta við bílum og kveikja í sófum. Allt þekktar leiðir til þess að fagna sigrum í íþróttakappleikjum.

Það þurfti að kalla út óeirðalögregluna til þess að hafa hemil á fjöldanum en það skilaði takmörkuðum árangri. Siguróðir stuðningsmenn Kentucky köstuðu tómum bjórflöskum í lögregluna og einhverjir brutust inn í verslanir.

Nokkrir slösuðust í látunum og um 20 manns voru handteknir. Lögreglan bíður nú milli vonar og ótta eftir úrslitaleiknum sem fram fer annað kvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×