Körfubolti

Hnéaðgerð Jeremy Lin heppnaðist vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jeremy Lin eftir aðgerðina í dag.
Jeremy Lin eftir aðgerðina í dag. Mynd/Twitter
Jeremy Lin, leikmaður New York Knicks, tilkynnti á Twitter-síðu sinni í kvöld að aðgerð sem hann gekkst undir á hné hafi heppnast vel.

Lin sló í gegn með Knicks í vetur eftir að hafa verið nánast óþekktur í upphafi tímabilsins. Hann fékk tækifæri í byrjun febrúar og sló í gegn. New York vann sjö leiki í röð og Lin var allt í öllu í leik liðsins.

Alls skoraði hann 14,6 stig að meðaltali í leik í vetur, gaf 6,1 stoðsendingu og tók 3,1 frákast. Hann spilaði síðast í sigri New York á Detroit þann 24. mars síðastliðnum en ekki er búist við því að hann spili meira á tímabilinu nema að New York komist langt í úrslitakeppninni.

Liðið er í ágætri stöðu í Austurdeildinni og á góðan möguleika á sæti í úrslitakeppninni.

Meðfylgjandi mynd birti Lin á Twitter-síðu sinni í kvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×