Körfubolti

NBA: Memphis Grizzlies keyrði yfir Miami | Aldrige hetja Portland

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rudy Gay fór fyrir sínum mönnum í nótt.
Rudy Gay fór fyrir sínum mönnum í nótt. Mynd / AP
Það var nóg um að vera í NBA-deildinni í nótt en alls fóru fram 11 leikir. Stórleikur kvöldsins var í beinni útsendingu á Stöð2 Sport þegar Miami Heat tók á móti Memphis Grizzlies. Gestirnir tóku völdin alveg frá byrjun og réðu ferðinni allan leikinn. Rudy Gay var góður í lið Memphis og fór fyrir sínu liði en hann gerði 17 stig.

Sigurinn skrifast samt sem áður á frábæra liðsheild en sjö leikmenn liðsins gerðu meira en tíu stig. Stjörnurnar þrjár í liði Miami áttu í raun ágætan leik. Lebron James var stigahæstur með 21 stig, Dwyane Wade gerði 20 stig og Chris Bosh var með 20 stig en liðið fékk gott sem ekkert framlag frá öðrum leikmönnum. Memphis vann að lokum öruggan sigur 97-82 en þetta var aðeins þriðji heimaleikurinn sem Miami Heat tapar á tímabilinu.

Portland Trail Blazers fór í heimsókn til Dallas þar sem þeir mættu meisturunum í Dallas Mavericks. Leikurinn var jafn og spennandi nánast allan tímann og skiptust liðin á að hafa forystu. Þegar venjulegum leiktíma var lokið var staðan jöfn og framlengja þurfti leikinn. Það var LaMarcus Aldridge, leikmaður Portland, sem var hetja liðsins í nótt en hann tryggði gestunum sigur með flautukörfu þegar leiktíminn rann út. Gestirnir unnu því frábæran sigur 99-97.

Oklahoma City Thunders hefur verið nánast óstöðvandi í vetur og eru til alls líklegir í NBA-deildinni í vetur. Í nótt fór liðið í heimsókn til Indiana Pacers. Heimamenn voru frábærir í nótt og unnu magnaðan sigur 103-98 á einu heitasta liði NBA-deildarinnar. Pacers náðu mest 22 stiga forystu í leiknum en gestirnir í OKC neituðu að gefast upp og komu til baka undir lokin, það dugði einfaldlega ekki til.

Önnur úrslit:

Cleveland Cavaliers 84 - 80 Toranto Raptors

Washington Wizards 98 - 110 New Jersey Nets

Detroit Pistons 96 - 101 Atlanta Hawks

Charlotte Bobcats 90 - 95 Milwaukee Bucks

New orleans Hornets 103 - 128 San Antonio Spurs

Phoenix Suns 99 - 105 Denver Nuggets

Golden State Warriors 98 - 104 Utah Jazz

Houston Rockets 112 - 107 LA Lakers

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×