Körfubolti

Fisher vann í LA | Miami pakkaði Dallas saman

Fisher og Kobe í nótt.
Fisher og Kobe í nótt.
Tveir stórleikir fóru fram í NBA-deildinni. Liðin sem kepptu um titilinn í fyrra mættust í Miami og Derek Fisher snéri aftur til Los Angeles með Oklahoma.

Leikurinn í LA var spennandi og skemmtilegur en Russell Westbrook hjá Oklahoma afgreiddi dæmið í þriðja leikhluta er hann skoraði 17 af 36 stigum sínum í leiknum. Kobe Bryant að sama skapi var ískaldur í liði Lakers.

Áhorfendur í LA tóku vel á móti Fisher og stóðu upp fyrir honum er hann yfirgaf völlinn undir lokin. Hann skoraði sjö stig í leiknum.

Eftir tvo tapleiki í röð komst Miami Heat aftur á sigurbraut gegn meisturum Dallas sem eru heillum horfnir sem fyrr.  LeBron James og Chris Bosh skoruðu báðir 19 stig fyrir Miami og Dwyane Wade skoraði 16.

Dirk Nowitzki var bestur í liði Dallas með 25 stig en Dallas gekk ekkert að eiga við vörn Miami í leiknum.

Úrslit:

Indiana-Washington  93-89

Miami-Dallas  106-85

Portland-New Orleans  99-93

LA Lakers-Oklahoma  93-102



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×