Körfubolti

Stal taco af veitingastað og flúði

Erving Walker.
Erving Walker.
Erving Walker, bakvörður Flórída-háskólans, virðist ekki vera beittasti hnífurinn í skúffunni en hann gerði sér lítið fyrir og stal 380 króna taco af veitingastað og flúði síðan.

Walker pantaði sér matinn og hljóp út er hann átti að borga. Lögregla var nálægt og elti körfuboltamanninn. Íþróttamaðurinn náði þó að stinga lögguna af.

Hann náðist þó að lokum. Leikmaðurinn gaf þá skýringu að hann hefði verið að fíflast.

Walker var að klára feril sinn hjá Gators og hann yfirgaf skólann sem stoðsendingahæsti leikmaður í sögu skólans og sá fjórði stigahæsti í sögunni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×