Körfubolti

Kobe gat ekkert en tryggði Lakers samt sigur

Kobe Bryant er engum líkur. Hann átti algjörlega skelfilegan leik gegn New Orleans í kvöld en afgreiddi samt leikinn með magnaðri þriggja stiga körfu. Kobe klúðraði 18 (þetta er ekki innsláttarvilla) fyrstu skotum sínum í leiknum.

Hann setti samt niður þriggja stiga körfu þegar 20 sekúndur voru eftir og tryggði Lakers nauman heimasigur. Hann var þá búinn að klúðra sjö þriggja stiga skotum í röð í leiknum. Síðustu þrjú skot hans í leiknum voru þau einu sem fóru ofan í.

Kobe endaði leikinn með 11 stig en Pau Gasol var stigahæstur með 21 og Andrew Bynum skoraði 19.

Lakers var búið að tapa tveimur heimaleikjum í röð fyrir þennan leik og sigurinn því kærkominn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×