Tónlist

Uppselt á Bryan Ferry - Aukatónleikum bætt við

Bryan Ferry trekkir að í Hörpuna.
Bryan Ferry trekkir að í Hörpuna.
Miðsalan á tónleika Bryan Ferry í Hörpu, á hvítasunnudag 27. maí, hófst á hádegi í dag og er óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið framúrskarandi. Uppselt er á tónleikana og því hefur öðrum tónleikum verið bætt við.

Í tilkynningu frá tónleikahöldurum segir að strax eftir að tónleikarnir voru staðfestir fundu þeir fyrir gríðarlegum áhuga. Því var strax athugaður sá möguleiki að halda aukatónleika. Bryan Ferry og starfslið hans sýndu þessu strax mikinn áhuga, enda er hópurinn gríðarlega spenntur fyrir komu sinni hingað. Tekið er fram að ekki sé hægt að bæta við fleiri tónleikum.

Seinni tónleikarnir fara fram degi seinna, eða mánudaginn 28. maí, sem er annar í hvítasunnu. Miðasala á þá hefst klukkan 11 á morgun, föstudag. Tónleikarnir fara einnig fram í Eldborgarsal Hörpu og aðeins eru 1.500 aðgöngumiðar í boði. Miðasala fer fram á harpa.is, midi.is, í miðasölu Hörpu og í síma 5285050.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.