Körfubolti

San Antonio Spurs vann Texas-slaginn án Tony Parker

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ginobili í baráttu við Jason Kidd í nótt.
Ginobili í baráttu við Jason Kidd í nótt. Mynd/AP/Eric Gay
San Antonio Spurs lagði Dallas Mavericks að velli 104-87 á heimavelli í nótt. Þetta var í þriðja skipti á tímabilinu sem liðið leikur án Tony Parker og loks tókst Spurs að hafa betur.

Manu Ginobili var í hlutverki leikstjórnanda í fjarveru Parker. Hann setti ellefu stig auk þess að eiga sjö stoðsendingar. Óeigingirni Argentínumannsins smitaði útfrá sér og lagði grunninn að sigrinum en sex leikmenn Spurs skoruðu tíu stig eða meira.

„Þetta var sigur liðsheildarinnar. Við vorum án Tony (Parker). Hann hefur farið fyrir okkur í síðustu 40 leikjum. Hann hefur verið stórkostlegur, skorað þrjátíu stig í mörgum leikjum og gefið tíu stoðsendingar en við gátum ekki leitað til hans í kvöld," sagði Ginobili.

Spurs lék einnig á Tigao Splitter sem hvíldi vegna meiðsla í baki. Danny Green var stigahæstur Spurs með 18 stig en Tim Duncan kom næstur með 15 stig.

Dirk Nowitzki skoraði aðeins 15 stig fyrir Mavericks auk þess að taka aðeins tvö fráköst. Óvenjulítið framlag hjá Þjóðverjanum magnaða sem var í gjörgæslu varnarmanna Spurs allan leikinn. Sérstaklega þótti nýi liðsmaður Spurs, Boris Diaw, standa sig vel gegn Nowitzki.

„Hann stóð sig frábærlega gegn Dirk. Hann átti í mikilli baráttu við hann. Hann lokaði á hann í hverju einasta skoti og gerði honum lífið leift. Hann var frábær í kvöld," sagði Duncan um samherja sinn Diaw.

Rick Carlisle, þjálfari Mavericks, kaus að nota Lamar Odom ekki í leiknum.

„Ég var búinn að segja Lamar frá þeirri áætlun minni, bæði í gær (fimmtudag) og í dag (föstudag), að skipta öðrum leikmönnum inn á í leiknum," sagði Carlisle.

Tvíframlengt í Oklahoma | 51 stig Love dugðu ekki til

Kevin Durant heldur áfram að slá í gegn hjá Oklahoma Thunderbirds. Durant fór á kostum í 149-140 sigri á Minnesota Timberwolves en tvíframlengja þurfti leikinn.

Durant skoraði fjörutíu stig auk þess að taka 17 fráköst í mögnuðum sigri. Hann féll þó í skuggann á Kevin Love sem var sjóðandi heitur og skoraði 51 stig. Helstu atvik úr leiknum má sjá hér.

Önnur úrslit í nótt (heimalið á undan):

Toronto Raptors 96-79 New York Knicks

Atlanta Hawks 93-84 New Jersey Nets

Detroit Pistons 73-88 Miami Heat

Philadelpha 76ers 99-86 Boston Celtics

Oklahoma Thunder 149-140 Minnesota Timberwolves

Utah Jazz 121-102 Denver Nuggets

Los Angeles Lakers 103-96 Portland Trail Blazers

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×