Körfubolti

Miami fékk skell gegn Indiana

Stjörnulið Miami Heat er eitthvað að gefa eftir í NBA-deildinni þessa dagana því liðið tapaði stórt annan leikinn í röð í nótt. Að þessu sinni gegn Indiana.

LeBron James og Dwayne Wade stigahæstir hjá Miami með 24 stig en hvorugur gat neitt er á reyndi. Danny Granger var með 25 stig fyrir Indiana sem er búið að vinna fjóra af fimm leikjum síðan liðið fékk Leandro Barbosa.

Fjögurra leikja sigurganga Bulls var stöðvuð með látum af Denver í nótt sem valtaði fyrir nautin.

Úrslit:

Toronto-Orlando  101-117

Washington-Detroit  77-79

Charlotte-Boston  95-102

Indiana-Miami  105-90

NJ Nets-Utah  84-105

NY Knicks-Milwaukee  89-80

Chicago-Denver  91-108

Houston-Sacramento  113-106

LA Clippers-New Orleans  97-85

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×