Körfubolti

Kobe bjargaði Lakers gegn Golden State

Kobe Bryant skoraði 30 stig fyrir LA Lakers í nótt og sá til þess að liðið marði sigur á Golden State í nótt. Lakers klúðraði niður 16 stiga forskoti í leiknum en Kobe jafnaði leikinn á ný undir lokin og skoraði körfuna sem kom Lakers aftur yfir.

Pau Gasol skoraði 19 stig og tók 17 fráköst sem er jöfnun á hans besta frákastaárangri. David Lee og Brandon Rush skoruðu 23 stig fyrir Warriors.

"Kobe var Kobe í þessum leik. Rosaleg frammistaða hjá honum í lokin. Þetta er það sem Kobe gerir best," sagði Mike Brown, þjálfari Lakers.

Öldungarnir í San Antonio unnu síðan sinn fimmta leik í röð og ætla ekkert að gefa eftir.

Úrslit:

Philadelphia-Cleveland  103-85

Milwaukee-Atlanta  108-101

Memphis-Minnesota  93-86

Dallas-Houston  90-81

Phoenix-San Antonio  100-107

Portland-Oklahoma  95-109

Golden State-LA Lakers  101-104

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×